5. áugúst 2008
13:27 | Ferðin á enda
Jæja þá erum við komin heim. Get nú ekki sagt að maður hafi verið tilbúinn að fara heim . Hefði nú alveg verið til í að halda áfram bara með bakpokann. En það er nú víst kreppa og allsstaðar dýrt þessa dagana þannig að þetta er nú bara orðið fínt í bili. Styttist bara í næstu ferð .

En allavega, við bara vorum snemma í því að fara út á völl. Tókum flugrútuna og vorum mætt 2.5 tímum fyrir brottför. Þá tók við endurskipulagning á töskum þar sem ein önnur taskan okkar var aðeins í þyngri kanntinum. Náðum að redda því með því að færa yfir í handfarangur.

Svo koma að því að tékka okkur inn í þetta blessaða Iceland Express flug. Það myndaðist strax sæmileg biðröð og bara 2 starfsmenn að innrita og allt sem þau gerðu var handskrifað. Veit ekki hvað var málið með það, væntanlega hefur tölvukerfið verið bilað þannig að hver aðili tók mjög langan tíma. Fyrir framan alla röðina var svo einhver hópur af mönnum með golf sett sem þarf að tékka eitthvað sérstaklega inn. Það leyndi sér líka ekki þarna að við vorum á leiðinni til Íslands þar sem þarna voru menn að troðast hægri vinstri í röðinni.

Klukkutíma seinna var röðin búin að færast um svona 5 metra. Þegar golf-ararnir voru svo búnir þá gekk röðin aðeins hraðar og þegar komið var að okkur þá var hálftími í brottför og við samt ekki næstum því öftust í röðinni.

Golfarar og Iceland Express voru ekki í neitt sérstöku uppáhaldi hjá okkur þarna

Ferðin gekk bara ansi vel. Keyrðum 1500 km meira en við ætluðum í upphafi og endaði þetta í 6000 km. Heimsóttum 14 lönd ef England og San Marino eru talin með. Mér fannst Róm og kannski Prag standa mest upp úr en Sonju fannst Lux og Prag.

Ítalía var dýrasta landið í ferðinni og Róm var lang lang dýrasta borgin. Ódýrasta landið var Ungverjaland eða Tékkland.

Bestu vegirnir voru í þýskalandi, verstu í Tékklandi og fylgdi Ungverjaland fast á eftir þar.

Hef þetta ekki lengra að sinni. Hér fyrir neðan getið þið svo séð kort nokkurn veginn af leiðinni sem við enduðum á því að fara.

Endanlegt kort
Gunni | Tjá mig(0)
4. áugúst 2008
22:14 | Keyrt til Frankfurt
vöknuðum bara nokkuð snemma og fórum í morgunmat hérna á hótelinu í Prag. Smökkuðum þar einhverjar tékkneskar pulsur sem litu bara nokkuð girnilega út, sama verður því miður ekki sagt um bragðið af þeim. Klukkutíma seinna var þetta skítabragð enn að koma upp hjá manni - þvílíkur viðbjóður og í morgunmat.

Vorum komin on the road bara um 10 og 548 km til Frankfurt. Vegirnir í Tékklandi voru skömminni skárri þarna vestan megin við Prag í átt til Þýskalands. Svo þegar yfir landamærin og inní þýskaland þá var ekki hægt að kvarta undan neinu enda þjóðverjar þekktir fyrir að hafa bestu vegi í heimi.

Tókum pissustopp á sjoppu hérna við hraðbrautina rétt fyrir utan Nurmberg. Það var ansi skondið að því leyti að maður þurfti að borga og fara í gegnum svona hálfgert flugvallar/lestarhlið til að komast þarna inn. Svo þegar inn var komið þá voru þetta nýtískulegasta salerni sem við höfum séð. Pissuskálarnar voru með digital skjá með auglýsingum. Svona lítill flatur skjár innfeldur í sjálfa pissuskálina. Klósettið detectaði svo þegar maður stóð upp og sturtaði niður og svo kom út armur sem þreif sjálfa setuna. við vorum í sannleikasagt að hugsa um að fara út í bíl og ná í myndavélina og fara aðra ferð á klósettið en það hefði verið hálf kjánalegt að stana þarna inni að mynda klósettin.

Á brú í Frankfurt

Vorum svo komin til Frankfurt rúmum klukkutíma síðar en við ætluðum þar sem það voru miklar vegaframkvæmdir milli Nurmberg og Frankfurt. Ætluðum svo að reyna semja við bílaleiguna um að fá að taka einn auka dag með bílinn og fá að skila honum á flugvellinum þar sem völlurinn er um 100 km fyrir utan bæinn. Hertz voru alveg til í að leyfa okkur að hafa bílinn degi lengur. En þá þurftum við að gera upp samninginn og búa til nýjan fyrir þennan eina dag og þá voru nátturulega allt önnur verð í gangi. Skiluðum því bílnum og ákváðum bara að taka flugrútuna upp á völl.

Okkar fyrstu kynni af Frankfurt voru ekkert sérstök. Frekar kuldaleg og ljót borg. Umferðin alveg fáráðnleg. Vegir þröngir, fólkið pirrað og ekkert skrítið að flestir bílar eru meira og minna dældaðir hérna.
Álit okkar á borginni jókst þó aðeins eftir að við löbbuðum um miðbæinn og niður við ána. Þar var stemmingin bara allt allt önnur og sá hluti mun fallegri. Breytir því nú samt ekki að við munum ekkert fara hingað aftur í bráð.

Gunni | Tjá mig(0)
3. áugúst 2008
20:55 | Kósý stemming í Prag
Kastalinn
Sváfum út samkvæmt minni skilgreiningu þar sem ég vaknaði eftir 10 tíma svefn án klukku. Sonja var nú samt ekki tilbúin að samþykja það þar sem það var ekki komið hádegi. Vorum komin út í slaginn um 10 leytið. Gripum okkur pizzu sneið og tókum svo Metroið niður í bæ og byrjuðum á því að fara og skoða kastalann hérna á hæðinni fyrir ofan miðbæinn. Svo löbbuðum við bara niður og aftur yfir Karlsbrúnna frægu.

Kastalinn úr fjarska
Svo eyddum við deginum í það að labba um nýja bæinn og skoða íbúðir ásamt því að skoða þessar fáu byggingar sem við vorum ekki þegar búin að kíkja á. Það er óhætt að segja að Prag hafi ansi heillandi göngugötu/búðarmenningu. Nóg af búðum og nánast hver bygging sem maður fer inn í

Komumst nú fljótt að því að merkjavörur hérna í Prag eru bara á sama verði og heima ef ekki dýrari og spilar nú lélegt gengi ansi hressilega þar inn í. Aftur á móti er hægt að gera frábær kaup hérna í minna þekktum merkjum og nýttum við okkur það til hins ýtrasta - þó aðalega ég.

Miðbærinn og Karlsbrúin
Eftir 5 tíma rölt um allar helstu búðir í Prag gripum við okkur kjúkling að borða og héldum upp á hótel enda klukkan að verða 9.

Góður dagur að baki og óhætt að segja að Prag er alveg frábær borg í alla staði. Rosalega falleg og maður er alls ekki í neinni stórborgarstemmingu hérna, gott metro kerfi og stutt í allt. Ekki skemmir fyrir að hér er gott að versla og hægt að fara ódýrt út að borða ( svo framarlega sem maður er ekki á aðaltorginu í bænum ).





Gunni | Tjá mig(0)
2. áugúst 2008
20:56 | Bratislava og Prag
Kastalinn í Bratislava
Jæja, enn og aftur ákváðum við að vakna snemma og nýta daginn vel. Fórum í morgunmat kl 8 og lögðum af stað svo til Prag um 8:30. Ákváðum að taka á okkur smá krók og keyra í gegnum Slóvakíu og stoppuðum stutt í Bratislava. Þar vorum við búin að finna okkur kastala sem okkur langaði að stoppa hjá og þar að auki var gott útsýni yfir borgina þaðan. Stoppuðum þar og tóku stuttan túrista rúnt í kringum þennan kastala. Keyrðum svo svolítið um borgina og komumst fljótt að því að þetta væri nú ekki staður sem við myndum fara aftur á.

Rafmagns-strætó

Meira segja strætisvagnarnir þarna eru furðulegir. Líta út fyrir að vera keyrðir áfram á rafmagni. Allavega eru svona rafmagnsleiðslur um allar helstu götur eins og sporvagnar nota. Og svo eru svona rafmagnsdæmi upp úr öllum strætóum. Bratislava menn fá plús í kladdann fyrir að vera með umhverfisvænni strætóa. En það er því miður eini plúsinn sem þeir fá.

Allavega, eftir stutt stopp þarna var svo ferðinni heitið lóðbeint til Prag. Beint á hraðbrautinna og brunað eftir þessum hraðbrautum, sem eru by the way verstu hraðbrautir í EVRÓPU. Alveg hreint út sagt ömurlegir vegir. Þeir verstu sem við höfum keyrt allavega. Venjulegir vegir í Ungverjalandi voru kannski ekki góðir en þeir þó allavega til fyrirmyndar.

Karlsbrúin

Vorum komin til Prag um 2 leitið, og enn og aftur þá stóð vinkona okkar í GPS tækinu sig alveg einstaklega vel og leiddi okkur upp á hótel án vandræða í fyrstu adrennu. Lögðum bílnum í bílastæðahúsið undir hótelinu og tékkuðum okkur inn. Notuðum fyrsta klukkutímann í að skoða bæklinga og hluti sem hægt er að skoða hérna. Komumst svo fljótt að því að allt það merkilegasta er nánast á einum stað í miðbænum og mjög stutt á milli staða. En þar sem það var rigning þá ákváðum við að kíkja aðeins inn í Shopping Mall hérna rétt hjá og nota svo bara allann morgundaginn í að túristast í borginni. Eftir stutt stopp í shopping mallinu fórum við út hundsvekkt þar sem við vorum búin að gera okkur væntingar um að allt væri voðalega ódýrt en í ljós kom að allt þarna var bara nánast á sama verði og heima. Reyndar voru eiginlega bara merkjavörur þarna en samt. Adidas strigaskór á 15-20 þús kall.

Karlsbrúin aftur

Þegar við komum svo út úr mallinu þá var hætt að rigna og komin sól þannig að við bara drifum okkur niður í bæ og löbbuðum aðeins um. Skoðuðum Karlsbrúnna, kastalanní fjarska og svo löbbuðum við slatta um gamla bæinn. Enduðum svo á því að borða á veitingarstað rétt hjá aðal torginu þar, þessu þarna með fræga klukkuturningum. Þar eru túristarnir teknir ósmurt og vorum við engin undantekning þar á. Verðin sem eru gefin upp á matseðlunum eru voðalega lág og heillandi. Í okkar tilviki settumst við niður á flottan stað þarna á torginu, pönntuðum okkur 2 pasta rétti. Á matseðlinum kostuðu þeir 13 evrur. Tókum með þessu svo 2 kók, einn kokteil og 1 eftir rétt. Reikningurinn endaði svo í 44 evrum eða um 5 þúsund kalli. Kókið sem var nánast ekki hægt að finna á matseðlinum kostaði 5 evrur glasið, 3 evrur að setjast niður á mann. Svo skattur ofan á allt heila klabbið og út kom 44 evrur.

Eftir matinn var svo bara haldið með metroinu upp á hótel enda dauðþreytt eftir langan dag.

Á morgun verður svo tekinn almennilegur túristarúntur um alla helstu staðina hérna í Prag.

Gunni | Tjá mig(0)
1. áugúst 2008
19:6 | Vín

Rifum okkur upp klukkan 7:30 og gerðum okkur tilbúin til að bruna til Vín. vorum komin upp í bíl um 8:30 og lögð af stað. Var sirka 250 km akstur hérna á milli. Ákváðum að vera í fyrra falli þar sem við stoppum bara eina nótt í vín og því mikilvægt að mæta snemma á svæðið til að getað skoðað okkur eitthvað um hérna.

Á leiðinni fór svo að helli rigna, það mikið að það varla sást út um gluggann. Svo byrjuðu þrumur og eldingar og ein elding kom niður í hraðbrautin rétt fyrir framan okkur. sem betur fer stóð þessi rigning stutt yfir og svona 50 km síðar þá keyrðum við út úr henni og sólin fór að skína.

Parlamentið

Vorum komin til Vínar um 11, gpsið fann hótelið alveg um leið og því vorum við kominn á ról um 12 leytið. Lögðum bílnum bara hérna í frítt stæði hérna við hótelið og tókum sporvagn niður í miðbæ. Þar löbbuðum við stóran hring hérna um miðbæinn sem átti að ná yfir allt það merkilegasta hérna í vín. Sami hringur og svona City Tour fer. Virkaði á okkur voðalega lítill spotti þegar við lögðum í hann en það var nú hreint og klárt vanmat. Kláruðum að labba hringinn um 6 leytið og vorum við orðin ansi þreytt í löppunum enda annar svona labbidagur í röð.

Karlskirkjan

Svona það sem okkur fannst standa upp úr hérna voru Karlskirkjan og gosbrunnurinn rétt hjá henni. Svo var Parlamentið og Ráðhúsið ansi flott líka. Við ráðhúsið var svo eitthvað húllumhæ, einhver kvikmyndahátíð. Þar voru svona básar frá öllum helstu veitingarstöðum í bænum og við ákváðum að fá okkur að borða þar. Fengum okkur að borða á Indverskum stað. Fengum rétti sem kosta á staðnum einhvern 3000 kall á 1000.

Gosbrunnur

Hérna voru svo 2 mjög flottar kirkjur en við orðin frekar þreytt á endalausum krikjum og svo virðist sem allar þessar kirkjur séu í viðgerð.

Planið í kvöld er svo bara að fara út að borða og svo snemma í háttinn og leggja eldsnemma af stað til Prag á morgun.

Gunni | Tjá mig(1)
31. júlí 2008
22:3 | Túristast í Budapest
Útsýni yfir Budapest
Vöknuðum bara nokkuð snemma hérna í Buddapest. Fórum og færðum bílinn okkar frá kirkjubílastæðinu sem er frítt á nóttunni. Færðum hann í bílastæðahús hérna neðar í götunni þar sem hann fékk að standa þangað til hitt stæðið varð frítt aftur .

Eftir það var svo haldið af stað vopnuð útkrotuðu korti þar sem við vorum búin að merkja inn gönguleið sem fór í gegnum allt það merkilegasta að okkar mati.

Parlamentið
Byrjuðum á því að fara og labba niður að Doná og labba upp á frelsistyttuna hérna í borginni sem er staðsett upp á hæð hérna yfir Doná. Þarna var góð hálftíma gana upp tröppur og brekkur til að komast þarna upp. En var nú alveg vel þess virði til að fá að sjá útsýnið yfir alla borgina. Það var samt alveg merkilegt að þegar við komum þarna upp, móð og rennandi sveitt þá bara fyrsta sem blasti við okkur þarna stelpa á háum hælum, klædd eins og hún væri á leiðinni á ball .

Gamla brúin
Eftir það fórum við svo og skoðuðum Budapalace og frá henni var mjög gott útsýni yfir Parlamentið , Dóná og gömlu brúnna.

Eftir það lá svo leiðinn upp að yfir gömlu brúnna og upp að Parlamenntinu. Svo lá leiðin bara upp á hostel aftur enda gott 6 tíma labb að baki. Skoðuðum nátturulega miklu fleiri hluti en þessa sem ég nefndi en þessir stóðu svona uppúr.

Í siglingunni
Svo í kvöld þá fórum við út að borða í svona siglingu á Doná. Það var bara ansi flott. Hlaðborð af kræsingum og sigling sem byrjaði þegar sólin var að setjast og svo þegar hún endaði var orðið alveg myrkur.

Vorum svo komin upp um 11 leytið og fórum beint að sofa enda dauðþreytt eftir langan dag og planið að vakna snemma og bruna til Vín.
Gunni | Tjá mig(0)
30. júlí 2008
22:2 | Keyrt til Búdapest
Gestrisnin hélt svo áfram þegar við vöknuðum hérna í Kranskja Gora. Klukkan 9 beið okkar þessi líka dýrindis morgunverður. Steikt Ommiletta handa Sonju og Beikon og egg handa mér. Auk þess voru ný bökuð brauð, eitthvða skyr-jógúrt ofl.

Eftir góðan morgunverð var svo gert sig tilbúin og haldið af stað í átt til Budapest. Eftir ráðleggingar frá hóteleigandanum, þá ákváðum að sleppa því að keyra í gegnum Slovenju þar sem vegatollarnir eru svo dýrir þar. Því var keyrt í gegnum Austurríki, nokkurn veginn á landamærunum og svo farið yfir í Ungverjaland.

Við vatn í Austurríki
Keyrðum alveg óvart frammeð flottu stóru vatni í Austurríki þar sem virtist vera mikið um vatnasport. Virkaði á okkur sem spennandi staður til að koma aftur til.

Það var svo ansi skondið að fara yfir landamærin til Ungverjalands. Það var nokkurnveginn eins og að spóla 20-30 ár aftur í tímann. Mikil fáttækt í þessu landi og allt frekar hrörlegt. Húsin illa við haldin og þess háttar. Það þó skánaði jafnt og þétt er við nálguðumst Búdapest.

Á þessari leið tókum við smá útúrdúr og keyrðum frammeð stóru vatni hérna í Ungverjalandi sem heitir Balton. Þetta er risastórt vatn og er eflaust Garda-vatn þeirra ungverja, samt ekki eins flott. Þarna var mikil túristastemming í smábæjunum sem var þarna meðfram vatninu. Allsstaðar fólk í sólbaði og eitthvað að djöflast út í vatninu. Svo var ansi skondið að á mörgum stöðum þá voru svona bekkir 100 metra út í vatninu. Á þeim sat fólk svo bara með veiðistöng og var að veiða.

Eftir að hafa þrætt nokkra smábæi meðfram vatninu héldum við bara upp á hraðbraut og brunuðum til Budapest. Komum þangað um 9 leytið, keyrðum í gegnum miðbæinn hérna þegar það var komið svona hálfmyrkur. Verð að segja það að miðbærinn hérna svona við fyrstu sýn er alveg ótrúlega flottur. Flottar byggingar og brýr meðfram ánni. Verður bara gaman að skoða sig aðeins um hérna á morgun. Fundum svo hostelið okkar sem var staðsett alveg í miðbænum. Fengum 2 manna herbergi, mjög fínt. Þetta er svona háskóla heimavist á veturnar og er svo breytt í hostel á sumrin. Eina sem hægt er að setja út á hérna er að hvert herbergi deilir baðherbergi með herberginu við hliðina, já og svo er ekki þráðlaust innternet hérna. En við ættum nú að getað lifað við það í 2 daga.
Gunni | Tjá mig(0)
29. júlí 2008
22:9 | Feneyjar og Fjallaþorð í Slóveníu
Fjallaþorp í Slóveníu

Jæja nú sitjum við í góðum gír í litlu fjallaþorpi sem heitir Kranskja Gora í Slóveníu. Þetta leit ekki vel út framan að þar sem þegar við komum að landamærunum Ítalíu og Slóveníu þá bara endaði kortið. Semsagt það eru enginn kort til yfir Slóveníu og við ekki heldur með nein kort á pappír. Keyrðum í gegnum mjög mjóa og hlykkjótta vegi í hlíðunum og þar að auki farið að koma myrkur. En allavega, komumst þó á leiðarenda í þetta pínulitla fjallaþorp sem er sýnist okkur einhver skíðaparadís á veturna.
Þegar við svo mættum á svæðið á hótilið okkar þá var tekið á móti okkur með bjór, slóvenskum skotum, og 2 rétta máltíð. Ótrúlega kósý og okkur eiginlega langar ekkert til að yfirgefa þennan magnaða stað í fyrramálið. Setti hérna inn mynd sem við tókum hérna út af svölunum. reyndar komið myrkur þannig að myndin kemur ekkert sérstaklega vel út þar sem myndavélin þurfti að lýsa hans svo mikið upp. Tökum betri myndir á morgun en núna verður þessi að duga. Fyrir áhugsama þá er hægt að nálgast upplýsingar um þropið hér : http://www.kranjska-gora.si/Home og um hótelið hér : http://www.sloveniaholidays.com/it/sportel

Markúsartorgið
En allavega, dagurinn byrjaði þannig að við tékkuðum okkur út af hótelinu bara um 10 leytið. Héldum af stað til Feneyja. Eftir 3 tíma asktur á hraðbrautunum komumst við svo á leiðarenda. Lögðum bílnum í bílastæðahús og tókum svo einhvern bátastrætó sem átti að vera hagstæðasta leiðinn til að komast þarna á milli. Eftir tæplega klukkutíma siglingu þarna um allt enduðum við á því að fara út úr honum nánast á sama stað og við fórum upp í hann og löbbuðum rest.

Rialto Bridge - brúin fræga
Röltum þarna um í um 2 tíma og skoðuðum þetta helsta þarna eins og t.d. Markúsartorgið og flottu brúnna.

Svo löbbuðum við bara til baka í bílinn. og héldum af stað til Slóveníu.
Gunni | Tjá mig(1)
28. júlí 2008
20:8 | Sleikt sólina á Rimini
Sonja á ströndinni
Það er nú lítið hægt að segja um þennan dag annað en að við bara sváfum út. Vorum svo komin út á strönd um 12. Fundum okkur pláss á ströndinni og sleiktum sólina til 3. Þá fórum við bara í smá rölt um bæinn. Svo tókum við aftur sólbað seinni partinn.

Gunni á Bounty
Eftir það settumst við niður á hótelbarnum með fartölvuna og plönuðum restina af ferðinni og bókuðum okkur hótel út ferðina. Næsta stopp er semsagt Ljubljana í Slóveníu. Svo förum við til Budapest í ungverjalandi. Því næst til Vín í Austurríki. Eftir það förum við til Prag í
Tékklandi og endum svo í Frankfurth í Þýskalandi þar sem við eigum pantað flug heim. Eftir að hafa planað ferðina þá skelltum við okkur út að borða aftur á Bounty og vorum svo komin snemma heim upp á hótel enda hálf dösuð eftir að hafa grillað okkur í sólinni í dag.
Gunni | Tjá mig(1)
27. júlí 2008
23:35 | San Marino ofl
i
Útsýni
Vöknuðum milli 8 og 9 þar sem við sofnuðum milli 10 og 11 í gær og þá búin að sofa vel út.

Fórum í súpermarkaðinn og keyptum okkur morgunmat og lögðum af stað til Rimini. Keyrðum þvert yfir landið og svo upp austurströndina í átt að Rimini. Fórum svo út af hraðbrautinni í kringum stað sem heitir eitthvað Porta Recanti og keyrðum í gegnum nokkra smábæi niður við ströndina. Á þessari leið var alveg svakalegt útsýni. Bæði upp í fjöllunum þegar við fórum yfir landið og svo líka þegar við keyrðum meðfram smábæjunum.

i
San Marino
Svo lá leiðinn aftur inn á hraðbrautina og í átt að Rimini. þegar þangað var komið þá brunuðum við fyrst upp til San Marino og skoðuðum okkur þar um og smelltum myndum.

San Marino

Eftir gott stopp í San Marino héldum við svo niður til Rimini og fundum hótelið sem við vorum bókuð á.
Klæddum okkur upp og fórum út á lífið. Fórum á 2 staði sem voru í fersu minni frá því ég kom hérna fyrir nokkrum árum. Byrjuðum á því að fá okkur að borða á stað sem heitir Bounty og hlustuðum á live tónlist. Svo eftir matinn og nokkra drykki þá færðum við okkur yfir á annan stað sem heitir Rose and Crown.

Gunni | Tjá mig(0)
26. júlí 2008
7:42 | Róm
Hrigleikahúsið að innan

Við vöknuðum um 9 leytið þar sem við þurftum að fara leyta okkur að nýju hóteli. Okkur til mikillar gleði þá fengum við þær fréttir að við gætum fengið aðra nótt hérna á þessu sama hóteli nema bara í öðru herbergi sem væri ekki með loftkælingu og sjónvarpi. Tókum það bara og fórum í morgunmat. Eftir það fórum við svo með metroinu niður á aðal lestar/rútustöðina og keyptum okkur miða í svona rauða túristarútu. Henntaði okkur afar vel þar sem við ætluðum ekki að stoppa lengi hérna í róm. Þessi rúta tók okkur á alla staðina, já eða maður hoppaði bara inn og út og gat labbað á alla frægu staðina.

Hringleikahúsið að utan

Eyddum mestum tíma í að skoða Hringleikahúsið og Vatikanið. Vorum í einhverja 2 tíma að skoða Hringleikahúsið að innan og utan, alveg ótrúleg bygging. Sama má eiginlega segja um vatikanið. Ótrúlegt hvað er hægt að eyða miklum peningum í að gera svona svakalegar hallir. Fyndnasta við vatikanið er að það er dress code þar inn. Og var ekki leyfilegt að fara þarna inn í stuttum stuttbuxum og ermalausum bol. Ég rétt slapp inn fyrir öryggishliðið þrátt fyrir að vera í stuttum stuttbuxum. Það var horft illum augum á mig svo þegar ég labbaði inn í sjálfa bygginguna.

Borgin er alveg alveg mögnuð, enda fornar glæsilegar byggingar í allar áttir. Eina sem hægt er að segja út á hérna er verðlagið. Hérna er svo sannarlega verið að níðast á túristanum.

Vatikanið

Við gátum að sjálfssögðu ekki sleppt því að láta taka okkur illa þannig. Þegar við vorum búin að skoða alla staðina á túristakortinu þá ákváðum við að setjast einhversstaðar niður og fá okkur eitthvaða að borða. Löbbuðum um og fundum stað sem okkur leyst ágætlega á. Á matseðlinum fyrir utan stóð að eins stór pizza kostaði 11 evrur. Við stukkum á það og settumst niður. Pizzan var fínt sem og staðurinn. En þegar kom að því að borga fyrir þessa blessuðu pizzu, 2 kók og 1 bjór þá missti maður nú andlitið. 40 EVRUR. 11 fyrir pizzuna, 10 fyrir 2 kók, 10 fyrir bjórinn og 6 fyrir að setjast niður á staðnum. Svo ofan á það var 30% skattur.

Eftir matinn þá héldum við bara upp á hótel enda dauðþreytt eftir mikið labb í þessum hita. Hitin fór í einhverjar 32 gráður hérna samkvæmt BBC en það var nátturulega logn allsstaðar. Vorum komin upp úr 9. Tókum því bara rólega hérna og ætluðum að fara skoða á netinu hvert við ættum að fara næst. Vorum svo dauðþreytt að við duttum niður fyrir 11 .

Svo á morgun er ferðinni heitið til Rimini í allavega 2 nætur. Ætlum að koma við í San Marino á leiðinni þangað.

Gunni | Tjá mig(2)
25. júlí 2008
19:19 | Gardavatnið og Skakki turninn
Piknik við Gardavatnið

Vöknuðum kl 9 og tékkuðum okkur út af hótelinu kl 10. Ákváðum að nota Internetið þarna á hótelinu og finna okkur næsta hótel svo það væri minna stress um kvöldið. Tókum þá ákvörðun að drífa okkur bara alla leið niður til Róm í dag þrátt fyrir að það væri ansi langt að fara. rúmlega 700 km. Lögðum af stað um 11 leytið og keyrðum hraðbrautina niður að Gardavatninu. Keyrðum svo meðfram öllu vatninu austan megin. Það er óhætt að segja að það hafi verið ansi magnaður rúntur og aðkoman að vatninu alveg ótrúleg ef maður kemur þarna niður frá ölpunum. Það er keyrt niður fjallshlíðina og útsýni yfir allt vatnið. Meðfram vatninu eru svo óteljandi smábæjir sem maður þarf að keyra í gegnum og þeirra á milli er maður að keyra á mjóum vegum utan í fjallshlíðinni. Stoppuðum svo við mitt vatnið og tókum Piknik á ströndinni og smelltum slatta af myndum.

Skakkiturninn í Pisa

Næsta stopp var svo í Pisa til að sjá skakka turninn. Tókum bara hraðbrautina þangað þar sem það var nú ekkert sem við ætluðum að skoða á leiðinni. Þrátt fyrir að einhver hafði sagt mér að það væri búið að rétta turninn við að hluta, þá stóð hann nú alveg undir nafni og var bara alveg þræl skakkur . Það er ekki hægt að segja að Pisa sé aðlaðandi staður að öðru leyti. Keyrðum þarna aðeins um og sáum nákvæmlega ekki neitt spennandi við þennan stað og því var bara brunað af stað til Róm. Ákváðum að keyra strandleiðina þrátt fyrir að hún væri seinlegri. Vorum að vona að það yrðu einhverjir magnaðir strandvegir en svo var því miður ekki. Flestir vegirnir voru þannig að maður sá ekki einu sinni til sjávar.

Komum svo til Rómar um 10 leytið og vorum kominn inn á hótel um 11.

Gunni | Tjá mig(1)
24. júlí 2008
19:18 | Disney kastalinn og Alparnir
Neuschwanstein kastalinn - Fyrirmyndi Disney kastalans

Sváfum til kl 10. Vorum komin á ról um 11 leytið. Löbbuðum þarna um og tókum myndir. Komumst þá fljótt að því að hinn kastalinn var líka í göngufæri frá hótelinu okkar. Ansi magnað. Höfðum valið þennan bæ Fussen bara vegna þess að ég vissi að þessir kastalar voru nálægt honum. Svo notuðum við gps tækið til að finna hótel. Eftir að hafa farið á miljón hótel sem voru öll full eða bara hreinlega svöruðu ekki bjöllunni þá enduðum við á hóteli sem er við hliðina á köstulunum.

Útsýnisstaður við kastalann

Allavega, byrjuðum á því að labba upp í minni kastalann. Hof-something. Ætluðum ekkert að fara borga okkur inn í hann þar sem hann var ekki næstum því eins merkilegur og hinn. Löbbuðum alveg upp að honum og tókum myndir. Svo fórum við í það að kaupa miða í hinn kastalann. Það þurfti semsagt að kaupa miða í svona guidaðan túr. Og næsti fór ekki af stað fyrr en eftir tæpa 2 tíma . Fórum því bara og fengum okkur að borða og höfðum það gott fram að því.

Kastalinn var mjög flottur að utan og það var alveg gaman að koma inn í hann og heyra söguna um hann. En ef það hefði ekki verið fyrir magnað útsýni úr kastalanum þá hefðu þessar 9 evrur og 2 tíma biðinn engan veginn verið þess virði.



Á leiðinni niður úr kastalanum fórum við svo á brú þarna á leiðinni sem var með flott útsýni yfir kastalann.

Resia uppistöðulóinð

Eftir þetta var svo bara haldið í átt að Garda-vatni á Ítalíu. Við fórum í gegnum Rechen Pass sem er leið yfir alpana í austurríki yfir til ítalíu. Það sem gerir þessa leið fræga er að efst uppi er uppistöðulón þar sem var sökkt heilum bæ undir vatn til að getað gert lónið. Eina sem stendur upp úr vatninu er einn kirkjuturn - Kárahnúkar hvað ?

Svo enduðum við á því að stoppa um 10 leytið í bæ sem heitir Trento sem er í Ítalíu, rétt fyrir ofan Garda vatnið og fundum okkur hótel þar.

Gunni | Tjá mig(0)
23. júlí 2008
19:18 | Mosalle dalurinn ofl
Mosalle áin

Dagurinn byrjaði þannig að við lögðum af stað þarna frá staðnum Joey aux Arcen. Ákváðum bara að setja inn alla þessa staði í gpsið þarna sem við fundum í greininni um mosalle dalinn og keyra. Komumst að þessum stððum og keyrðum þarna í gegnum þetta. Byrjuðum á stað sem heitir eitthvað Remerschen þar sem var vindmilla og einhver tankur upp á hæð. Svo héldum við þaðan út á veg n10 eins og var talað um í greininni. Alveg hreint út sagt magnaðir bæir sem við fórum í gegnum. Fórum svo út af n10 í átt að stað sem heitir eitthvað grenadale og þar fengum við alveg magnað útsýni yfir dalinn. Stoppuðum þar uppi og fengum okkur hádegismat. Héldum svo einhverja 50 km áfram niður með ánni og skoðuðum okkur um. Endaði með því að við vorum komin í bæ sem heitir Trier sem er í þýskalandi. Þá áttuðum við okkur á því að við höfðum tekið n10 í vitlausa átt. En við vorum alveg fullkomlega sátt þar sem þessir 2 tímar höfðu verið ansi magnaðir.

Frá Trier ákváðum við svo að halda förinn áfram og keyra í átt til Basel. Stoppuðum einu sinni á leiðinni í bæ sem heitir eitthvað Philadale eða eitthvað þessháttar. Þar skoðuðum við kirkju á torgi bæjarins.

Svo var förinn haldið áfram til Basel. Fyrir utan Strasbourg lentum við svo í klukkutíma umferðateppu þar sem það hafði orðið eitthvða slys lang fyrir framan okkur. Eða höldum að það hafi verið slys þar sem það kom sjúkrabíll og allir þurftu að færa sig út í kannt á veginum.

Þegar það losnaði svo þá héldum við bara áfram til basel. Fyrri partinn af leiðinni höfðum við verið að keyra í þýsklandi þar sem voru aðalega þýskir bílar. Svo skiptum við yfir í frakkland og þá voru eiginlega bara Pugeot á vegunum. Svoldið skondið svona í ljósi þess að maður sá þetta nánast nákvæmlega þegar við fórum yfir landamærin..

Keyrðum svo inn í basel sem er alveg á landamærum swiss. Þar fengum við kalda vatnasgusu í hausinn á okkur. Þurftum að borga 30 evrur í vegatolla reyndar fengum við einhverja 5 franka til baka þannig að þetta voru svona 26 evrur. En það þýðir ekkert að grenja það.

Þegar við svo komum til basel þá bara keyrðum við beint inn í miðbæinn. Lögðum bílnum þarna í einhverju bílastæðahúsi og löbbuðum þarna um miðbæinn / torgið og reyndum að finna eitthvað þráðlaust net. Það var jú eina ástæðan fyrir því að við stoppuðum í Basel var að reyna finna þráðlaust net til að getað planað næstu skref.

Starbucks í Basel

Tókum myndir af okkur fyrir framan einhverja aðalbyggingu þarna og fundum svo þráðlaust net á Starbucks. Skoðuðum gistingar á netinu í swiss og komumst að því að það er allt rándýrt í swiss. Þannig að við ákváðum að keyra bara eitthvað áleiðis til Fussen og reyna finna ódýra gistingu á leiðinni. Keyrðum í gegnum hvern smábæinn á fætur öðrum og stoppuðum á nokkrum hótelum í einum bæ án þess að finna gistingu þannig að við héldum bara áfram að keyra til Fussen. Enduðum svo á að keyra alveg þangað. Keyrðum upp a flest öllum hótelum sem við sáum þar og ég stökk út og allsstaðar svaraði enginn bjöllunni. Svo keyrðum við aðeins út fyrir bæinn að einhverju hóteli sem er basicly við hliðina á öðrum kastalanum. Og viti menn, þar var gisting. Fengum hana meira segja á afslætti aþr sem við komum svo seint. Fengum hana á 60 evrur í stað 85 og útsýni af öðrum kastalanum út um gluggann.

Hohenschwangau kastalinn út um gluggann

Þetta er minni kastallinn sem Lúðvík konungur bjó í á meðan hann byggði hinn kastalann ( disney ).

Gunni | Tjá mig(0)
22. júlí 2008
19:18 | Belgía og Luxembourg
Kirkja í smábæi í Belgíu

Dagurinn í dag var ansi viðburðaríkur. vöknuðum snemma eða rétt fyrir 9 og ég hljóp út í bíl og sótti hann þar sem bílastæðin byrja að rukkast klukkan 9. Eftir það var bara brunað af stað til Luxembourg. Um 400 kílómetrar. Fórum bæði í gegnum Antwerpen og Brussel á þessari leið. Stoppuðum í Brussel á bensínstöð í úthverfi og tókum 2 mjög lélegar myndir. Eftir það var svo bara haldið áfram að keyra og næst stoppuðum við í smábæ þar sem við sáum einhverja flotta kirkju / byggingu og ákváðum að fara og skoða - Höldum að bærinn hafi heitið Rockfella eða eitthvað þessháttar og keyrðm aðeins um hann. Hann var ansi flottur, voðalega lítill og vinalegur eitthvað. Skoðuðum þarna þessa byggingu, aðra litla gamla kirkju og svo stoppuðum við á aðaðl torginu og tókum slatta af myndum. Fengum okkur svo að borða rétt fyrir utan bæinn áður en við fórum af stað aftur. Stoppuðum svo svona 50 km eftir það til að taka bensín á stað sem hét eitthvað Betrix og voru eitthvað 60 km í lux þaðan.

Sonja í miðbæ Luxembourg

Svo lá leiðin bara beint til Lux og inn í City Center. Gekk allt eins og í sögu og við fundum stæði alveg í miðbænum sem við þurftum að borga eitthvað 2 evrur fyrir stæði til 18 og svo var frítt eftir það. Löbbuðum þarna um í 2-3 tíma og skoðuðum allt mögulegt. Þetta er nátturlega alveg magnað borgarstæði í þessari hæð / dal. Forum svo inn í Nort Dame Cathetral og löbbuðum svo um aðaltorgir og tókum svo hring þarna um þennan dal. Eftir það fórum við svo út að borða á aðaltorginu og varð fyrir valinu að þessu sinni Pizza Hut. Hvítlauksbrauð og pizza og smakkaðist svona líka fínt. Magnað við borgina að það eru skilti út um halt sem eru svona WiFi - Hot City. Semsagt, basicly allur miðbærinn er þráðlaus. Kom sér vel þegar við vorum að fara leit að næsta stoppustað þar sem gpsið var ekki alveg að gúddera Metz.

En allavega, náðum að finna einhverja leið til Metz, vorum búin að finna okkur ódýrt vegahótel 10 km fyrir utan Metz í átt að þessum Mosalle dal sem okkur langar að keyra um. Sögðum fuck it við gpsið og ákváðum bara að nota leiðbeininarnar sem við fengum frá hótelinu.

Allt gekk eins og í sögu nema hvað að exit 30 var lokað þannig að við lentum í smá basli með þetta. Komumst þó á þennan stað sem hótelið benti á á heimasíðunni hjá sér. Ekkert hótel á þeirri addressu. Vorum með google map addressu frá þeim og mynd. Fórum þangað en ekkert hótel var þar. Okkur til mikillar gleði hafði Sonja séð eitthvað nafn sem líktist okkar hóteli á þessari leið þannig að við fórum þangað. Og viti menn þar var hótelið, bara ekki á réttum stað miðað við heimasíðuna þeirra. Anywho, við fórum bara inn á þetta hótel. Það bar þess nú alveg merki að vera ódýrt, en alveg nothæft engu að síður.

Gunni | Tjá mig(0)
21. júlí 2008
19:18 | Bílaleigubíllinn
Vöknuðum bara nokkuð snemma eða um 10 leitið. Ég stökk svo út og fór í súpermarkað til að kaupa eitthvað að borða handa okkur.

Mazda tryllitækið okkar

Svo upp úr 11 tjékkuðum við okkur út af hótelinu og lögðum í hann. Fengum stelpu í lobbyinu til að hringja fyrir okkur á bílaleiguna og ræða við þau hvort við mættum sækja bílinn fyrr og eitthvað. Í ljós kom að bílaleigan var nú í hinum enda Dusseldorf og þurftum við því að splæsa í góðar 30 evrur til að komast þangað. Þegar á hólm var komið þá gekk þetta nokkuð vel fyrir sig að fá bílinn. Besti parturinn var sá að við fengum bíl í næsta stærðarflokki fyrir ofan og fengum svona Mazda 5 stadion bíl sem tekur upp í allt að 7 farþega. Svo er hægt að fella niður sætin og búa til þessa fínu svefn-álmu þarna aftur í þannig að það er örugglega heppilegra heldur en að kaupa tjald, sérstaklega ef við kaupum uppblásna dýnu.

Næsta skref var svo að finna einhverja búð til að kaupa einhverjar matvörur til að hafa með okkur í bílnum og svo ætluðum við líka að kaupa mini bíla kælir og eitthvða ef við fyndum það á góðu verði. Fundum svo engann góðan markað þrátt fyrir að hafa stoppað nokkrusinnum og fengið mis góðar leiðbeiningar. Endaði bara með því að við stoppuðum í lítilli matvöruverslun og keyptum okkur bara brauð, álegg og eitthvað.

Eftir það var svo bara haldið af stað í átt að Amsterdam. Sú ferð tók svona 200km og gekk bara mjög vel. Sáum nokkrar skemmtilegar hollenskar vindmyllur og eitthvað svoleiðis. Flettum upp einhverju hóteli á góðu verði nálægt miðbæ Amsterdam en þegar þangað var komið þá var það það fullt. Og hótelin þarna í miðbænum voru öll á um 100 evrur nóttin og auk þess þyrftum við að borga 40 evrur í bílageymslu. Prófaði því að kveikja á tölvunni og þar duttum við strax inn á þráðlaust net (enda í miðbænum) og fórum og fundum okkur hótel aðeins lengra frá bænum á 39 evrur nóttin. Bara fínasta hótel og public transport beint fyrir utan. Lögðum svo bara bílnum í bílastæði hérna rétt hjá sem er frítt frá 19-9 á morgnanna. Og ákváðum því bara að fara snemma af stað á morgun.

Gunni í miðbæ Amsterdam

Næst fórum við svo bara með Rampinum ( lestarkerfið ) niður í bæ og skoðuðum allt þar, já eða röltum aðeins um og skoðuðum. Fórum svo bara og fengum okkur pizzu og bjór á aðalgötunni. Næst var svo haldið í hið fræga Rauða Hverfi ( red-light districs ) og rölt þar í geng. Ansi athyglisvert verð ég að segja en gaman að vera búinn að koma þangað og sjá þetta með berum augum. Eftir þessa sjokkeringu ákváðum við svo bara að setjast inn á einhvern pub og fá okkur einn kaldann áður en við myndum halda aftur upp á hótel. Fórum inn á bar þar sem var verið að spila Live Jass tónlist.

Vorum svo bara kominn upp á hótel um 23 og fórum á netið.

Gunni | Tjá mig(0)
20. júlí 2008
19:17 | Flogið út
Vöknuðum klukkan 5 á laugardagsnóttu og lögðum í hann upp á völl. Komum við á n1 og nestuðum okkur upp fyrir ferðina með 2 pulsum, og 3 samlokum á mann til þess að þurfa ekki að láta taka sig enn og aftur á þessum blessuðu flugvöllum.

Iceland express flugið gekk ágætlega og lenntum við korteri á undan áætlun á london stansted. Í ljósi þess hversu dýrt það hefði verið að geyma töskurnar ( 5 pund hver taska ) og svo taka stansted express ( 26 pund hvor ) þá ákváðum við bara að taka því rólega á þessum annars stórkostlega flugvelli, HÓST.

Þarna kom sér vel að hafa tekið laptopinn með því við bara horfðum á bíómyndir ( kláruðum semi- pro frá flugvélinni ) og horfðum svo á Gone Baby Gone.

Loksins svo þegar opnaði þarna inn í checkinnið hjá RyanAir 2 tímum fyrir brottför þá þurftu þau endilega að vera með eitthvað vesen. Vorum bæði með yfirvikt ( 18 kg ) og bara leyfilegt að vera með 15 og 10 í handfarangur. Þau ætluðu að rukka okkur 12 pund fyrir hvert kg sem hefði verið 72 pund eða rúmur 10 þúsund kall. VIð bara ákváðum að breyta aðeins í töskunum og færa drasl yfir í handfarangurinn. Og svo var tjaldinu mínu fórnað enda voru komin 2 göt á það og rennilásinn ónýtur. Ákvað frekar að kaupa nýtt tjald í þýskalandi frekar en að borga 5000 kall undir það í þessu flugi.

Svo loksins þegar það var komið þá var flugmiðinn hennar Sonju ekki sammþykktur þar sem hún hafði skrifað Á og Ó í nafninu sínu og það komu bara spurningarmerki á miðann. Þá þurftum við að fara í lengstu röð í heimi til þess að breyta því áður en við gátum komist í gegn.

Eftir klukkutíma bið þarna þá loksins komumst við inn á völlinn og þá orðin allt of sein þannig að við höfðum rétt svo tíma til að fara á klósettið og koma okkur út í vél.

Það rétt hafðist, reyndar föttuðum ekki að ryanair er ekki með merkt sæti og vorum ekkert að stressa okkur á röðinni en það slapp fyrir horn. Vélin sem við fórum með var einhver Harlem týpa af boing 737 og þvílíku lætinn þarna inni. Varla hægt að tala saman.

Við lenntum svo tæplega hálftíma á undan áætlun í þýskalandi í flugi sem tók bara 45 mínútur. Komumst út af vellinnum á svona 5 mínútum. Aldrei lennt í jafn hraðvirku dæmi. Bara nánast löbbuðum beint í gegn, töskurnar komnar og allt ready.

Þegar kom svo að því að taka leigara á hótelið sem við héldum að væri tæpum 2 km frá vellinum þá kom í ljós að það var 2 km frá hinum vellinum. við lenntum á nískupúkavellinum sem var 85 km fyrir utan dusseldorf. Það kostaði okkur 100 evrur í leigara.

Leigarinn var ansi hress á bensíngjöfinni, beint inn á hraðbrautina og hélt tæplega 170 km meðalhraða og komumst við upp á hótel án mikilla vandræða á tæplega klukkutíma.

Hótelið var svo alveg magnað miðað við að við borguðum 40 evruru fyrir það. 4 stjörnur og alveg tipp topp í alla staði.

Fórum svo bara snemma að sofa enda bæð dauðþreytt og sonja lítið sem ekkert búinn að sofa í 2 daga.
Gunni | Tjá mig(0)
19. júlí 2008
19:17 | Eurotrip 2008

Jæja þá er evrópuferðin alveg að skella á.  Ferðin var ákveðin með aðeins viku fyrirvara og því lítill tími til að skipuleggja þetta af einhverju viti.  En allavega, svona líta fyrstu drög út.  Hvort við náum að halda þessu plani verður svo bara að koma í ljós.   Einnig erum við búin að gefa okkur talsverðan slaka í sennipart ferðarinnar og því ansi líklegt að við förum eitthvað meira inn í austur evrópu og heimsækjum kannski fleiri lönd.

En allavega, svona lítur þetta út.

Google linkur : Skoða hér

Eurotrip 2008 - Kort
Gunni | Tjá mig(0)
Kaldir á kantinum
  -  Arnar Forseti
  -  Dobbeljú
  -  Elísa
  -  Erla Dögg
  -  Freysi
  -  Garlakadl.tk
  -  Gönni ActionFish
  -  Hannadora.com
  -  Hjördís
  -  Merides.Net
  -  Óli Þór

Snillar að austan
  -  BiggiBiggi
  -  Gunni Sigvalda
  -  Haffi frændi
  -  hallastefans.com
  -  Hallur frændi
  -  Maggy skvísa
  -  Sigrún Ágústa
  -  Toni
  -  Unnur Jóna
  -  Unnur Jóns
  -  Þorkell

Gúmmelaði
  -  Liverpool.is
  -  Skysports
Hvar er best að vera ? ?
Hverfisbarnum
Felix
Ara í ögri
Hótel Framtíð
Gauknum
      
Eldri...      
© Copyright 2002-2004, Gunnar Stefánsson.
Síðast uppfært: 22.2.2003 - 6:50