Heim   |   Um vefinn   |   Hafa samband

Myndir
Gestabók


Hver vinnur Idolið ?
Hildur Vala
Heiða

Eldri...   

 
19.3.2005 - 12:9
Laugardagurinn 19. mars ´05

Jæja...er að spá í að hvíla þessa heimasíðu í bili   Er komin með nett leið á að skrifa eitthvað hérna inn og upp á síðakastið hefur þetta bara verið upptalning á því hvað maður hefur verið að gera um helgar...því spurning um að hvíla þetta í bili og sjá hvort maður detti í gírinn seinna  

Endilega kvittið í gestabókina svo ég sjái nú hverjir hafa verið að kíkja á síðuna 

10.3.2005 - 20:31
Fimmtudagurinn 10. mars ´05

Vá hvað vikurnar líða hratt....vikan varla byrjuð og strax að koma helgi   En alla vega....þá var síðasta helgi svipuð hinni á undan = fullskipuð hjá minni. Fór á Idolið og kíkti aðeins í austfirðingapartý á föstudeginum, fór báða dagana í Bláfjöll á bretti, á djammið á laugardeginum og svo helginni slúttað með bíói....ekki hægt að segja annað en að nýtingin á helgunum hjá manni sé góð   Annars er ekkert að frétta....bugldjamm á laugardaginn....það verður nú gaman að tjútta með gamla kleifó-liðinu...enda búið að vera stefnan lengi að hittast og ef ég þekki okkur Hönnu Maríu rétt þá erum við að tala um massa djamm...spurning um að reyna að missa sig ekki eins og alltaf á barnum

Var ég að henda inn nýjum djamm myndum...annar pakkinn er frá 19 febrúar en hinn frá síðustu helgi

24.2.2005 - 23:49
Fimmtudagurinn 24. febrúar ´05

Kannski spurning um að skella á síðuna einni færslu um síðustu helgi...svona rétt áður en þessi helgi dettur inn   Uuuu...sko...það er ekki hægt að segja annað en að síðasta helgi hafi verið nýtt vel....fór tvisvar í búðaráp í Kringluna, tvisvar í bíó, út að borða og tvisvar á djammið = þreyta á mánudegi en samt vel þess virði

Við stelpurnar kíktum á föstudeginum á Victor í bjór og Idol, kíktum svo örstutt á Tótu á Kofanum og trítluðum svo yfir á Ara og vorum þar í góðum gír eitthvað fram eftir

Á laugardeginum fór ég svo út að borða og í bíó með Guðrúnu...eftir bíóið ákvað mín bara að bruna heim og sjæna sig og skella sér á djammið með Herdísi og fleiri skvísum   Eitt sem ég hef verið að spá....hvað er með mig upp á síðkastið og að týna hlutunum mínum á djamminu...um daginn var það myndavél og veski og núna glæný næla...ekkert pirruð eða þannig   Skellti mér bara daginn eftir og keypti mér nýja

Er búin að skella inn myndum frá föstudeginum en á eftir að skrifa við þær – samt gaman að skoða (Það var að vísu eitthvað tölvuklikk í gangi þannig að þetta kemur tvisvar inn...en neðri myndadæmið er í lagi)

Skelli svo laugardagsmyndunum inn fljótlega

15.2.2005 - 20:8
Þriðjudagurinn 15. febrúar ´05

Jæja spurning um að sýna smá hreyfingu hérna á þessari blessuðu heimasíðu, orðið ansi langt síðan síðasta færsla var skrifuð   Að vísu er ekki mikið að frétta af manni…uuu...hugsa hugsa...tók bara rólegheit á þetta um helgina en fór á djammið síðustu tvær helgar á undan þessari.  Fórum nokkrar skvísur á Sálarball á Nasa um daginn...ótrúlega gaman að fara á svona öðruvísi djamm.  Að sjálfsögðu var myndavélin með í för...en það munaði nú ekki miklu að hún heyrði sögunni til   Fólk sem þekkir mig veit að ég er nú ekki vön að vera að týna hlutunum mínum t.d. hefur þessi myndavél verið með á hverju einasta djammi í tvö ár.  En stuttu eftir að við komum inn á Nasa þá var peningaveskið mitt týnt...eftir smá leit þá fannst það í fatahenginu.  Svo eftir Sálardjammið skelltum við okkur að hitta buglarana á Ara og þegar átti að fara að smella nokkrum myndum af þeim þá var engin myndavél á svæðinu...þá var hlaupið í kvíðakasti aftur niður á Nasa og myndavélin fannst í fantahenginu   Mér finnst þetta nú ferkar ótrúlegt að týna tveimur hlutum sama kvöldið og að báðir finnist aftur - greinilegt að það er til heiðarlegt fólk...sem betur fer...hefði verið í þokkalegu rusli ef vélin hefði ekki fundist.  En eftir að þessu kvíðakasti og fagnaðarlátunum lauk þá var kíkt til Tótu á Kofanum og djammað fram undir morgun   Langt síðan maður hefur eytt svona miklu á barnum á einu kvöldi...við Hanna María erum góðar þegar við tökum okkur til...þá er ekki mikið verið að hugsa um peninga...bara kaupa kaupa

Skellti nokkrum myndum frá síðustu tveimur djammferðum – kíkið á þær

22.1.2005 - 18:7
Laugardagurinn 22. janúar ´05

Kíktum á djammið síðustu helgi en aldrei þessu vant þá klikkaði eitthvað með að taka myndir.  En alla vega þá hittumst við hérna heima og enduðum svo á Rex...sem var bara mjög fínt fyrir utan þessa brjáluðu röð í ausandi rigningu  

Í gær kíkti ég aðeins í Bugl-afmælispartý hjá Björgvini...og æ það var ýkt gaman að hitta þau...maður verður að fara að tjútta með þeim fljótlega og rifja upp skemmtilegt djammsumar (já og Gígja...við hljótum nú að geta fundið gaurinn í rauða bolnum aftur

Ég skellti inn nokkrum myndum frá því um síðustu helgi og svo síðan í gær...nokkrar myndir eru nú skárra en ekkert

14.1.2005 - 24:54
Föstudagurinn 14. janúar ´04

Ég er alvarlega að spá í hvort ég eigi ekki að fara í einhverja meðferð við fatafíkn....ég meina þetta er langt frá því að vera eðlilegt...og ekki það að ég geti sagt að ég sé sjúk að kaupa eitthvað á þessum leiðinlegu útsölum eins og flestir aðrir gera...nei þá er ég bara sjúk í eitthvað sem er ekki á útsölu og kostar kannski 20 þús.  

En fyrir utan þessa fatafíkn mína þá þoli ég ekki þennan árstíma í búðum...bara eitthvað drasla til og allir að róta í því og allir að slást um eitthvað sem er búið að vera til í marga mánuði...já og svo alltaf einhverjar asnalegar stærðir eftir...alla vega er ég löngu komin með leið á því að skoða alltaf þessi sömu föt...kannski er það hluti af ástæðunni fyrir því að ég er alltaf sjúk í eitthvað sem er ekki á útsölu af því þá eru það oftast nýjar vörur eða eitthvað cool sem fer hvort sem er ekkert á útsölu  

Á morgun á svo að skella sér á tjúttið...við stelpurnar ætlum að hittast hérna hjá mér en vá hvað það er langt síðan maður hefur farið á djammið með þeim þannig að þetta verður örugglega bara ýkt gaman hjá okkur





 

Síður vina og kunningja
Anton
Auður
Bára
Birgir Thorberg
Bryndís
Diljá
Dröfn
Erla
Geir Oddur
Guðrún Línberg
Guðrún Ósk
Gunnar
Hafdís Arna
Hafþór Snjólfur
Hallur
Jórunn
Kristín Berta
Kristveig
Maggý
Óli
Palli
Ragna
Rán
Regína
Sigrún Ágústa
Sigrún Ósk
Solla
Stebbi
Svana
Systa
Þorkell
Unnur Jóns

Heimasíður barna
Anton Unnar
Aþena Ösp
Birkir Snær
Diljá, Anný og Aníta
Djúpavogskrílin
Einar Karl
Hafrún Alexia
Íris Antonía
Lilja Berglind
Sóley og Sindri Rafn
Vaka
Viktor Örn
Viktoría Brá

Djammsíður
Felix
Hverfisbarinn
Nasa
Sólon
Vegamót

Gagnlegar síður
Djúpivogur
Félagsráðgjöf HÍ
Háskóli Íslands
Mentor félag félagsráðgjafa
S.G. Vélar ehf.
Leitarstrengur Leitarvél    
Copyright 2003 © hallastefans.com - All rights reserved